Fimm leikir fara fram í 19. umferð Olís-deildar karla í handknattleik og ber þar hæst leik Selfoss og Hauka en tvö efstu liðin í deildinni mætast á Selfossi í kvöld.
Með sigri kemst Selfoss í toppsæti deildarinnar en Haukar tróna á toppi deildarinnar, eru stigi á undan Selfyssingum. Haukar fara langt með því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn með sigri í kvöld og því verður mikið undir í Hleðslu-höllinni á Selfossi.
Leikirnir í dag eru:
14.00 ÍBV - FH
18.00 Afturelding - KA
19.30 Stjarnan - Grótta
19.30 ÍR - Grótta
19.30 Selfoss - Haukar