Kristianstad tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum sænska handboltans eftir 25:22-útisigur á Redbergslid. Kristianstad vann einvígið 3:1 og mætir Sävehof í undanúrslitum.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad, Teitur Örn Einarsson tvö og Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði eitt mark.
Ágúst Elí Björgvinsson ver mark Sävehof, sem vann óvæntan sigur á Malmö, 3:1, í átta liða úrslitum og eigast Íslendingaliðin við í undanúrslitum.