Akureyringarnir og Þórsararnir Arnór Þór Gunnarsson og Oddur Gretarsson eru hvor í sínu horninu í úrvalsliði 10. umferðar í þýsku Bundesligunni í handknattleik.
Oddur skoraði átta mörk úr níu skotum fyrir Balingen í sigri gegn Füchse Berlín 31:30 í gær og á sama tíma skoraði Arnór Þór sex mörk úr sex skotum fyrir Bergischer í 25:25 jafntefli á móti Göppingen.