Ólafur Andrés Guðmundsson, Teitur Örn Einarsson og samherjar þeirra í sænska liðinu Kristianstad gerðu í kvöld 29:29-jafntefli við Dinamo Bucharest frá Rúmeníu í Meistaradeild Evrópu í handbolta.
Ólafur skoraði þrjú mörk og Teitur tvö fyrir Kristianstad sem var með 29:27-forskot þegar skammt var eftir. Rúmenska liðið skoraði hins vegar tvö síðustu mörkin og tryggði sér eitt stig.
Kristianstad er í fimmta sæti D-riðils með fimm stig og Dinamo í toppsætinu með þrettán stig. Möguleikar Kristianstad á að fara upp úr riðlinum eru litlir sem engir eftir leikinn.