Þjálfari Stjörnunnar smitaður

Allur leikmannahópur Stjörnunnar er í sóttkví.
Allur leikmannahópur Stjörnunnar er í sóttkví. mbl.is/Kristinn Magnússon

Meistaraflokkur karla hjá Stjörnunni í handbolta er kominn í sóttkví eftir að meðlimur í þjálfarateymi liðsins smitaðist af kórónuveirunni. 

Ekki er vitað hvaða þjálfari smitaðist, en ljóst er að fleiri innan handknattleikshreyfingarinnar gætu verið smitaðir þar sem Stjarnan hefur leikið þrjá leiki á síðustu átta dögum; gegn ÍBV, Aftureldingu og Fram. 

Verða allir leikmenn Stjörnunnar í sóttkví næstu tvær vikurnar vegna smitsins. Fyrr í dag var tilkynnt um ótímabundnar frestanir á handboltanum hérlendis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert