Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvívegis fyrir Kielce þegar liðið fékk Pick Szeged í heimsókn í Meistaradeildinni í handknattleik í Póllandi í dag.
Leiknum lauk með þriggja marka sigri Kielce, 26:23, en pólska liðið leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 12:7.
Pick Szeged tókst að minnka muninn í eitt mark þegar sex mínútur voru til leiksloka, 22:21, en lengra komst ungverska liðið ekki og Kielce fagnaði sigri.
Haukur Þrastarson komst ekki á blað hjá Kielce en hann er að koma til baka eftir meiðsli. Þá var Stefán Rafn Sigurmannsson ekki í leikmannahópi Pick Szeged vegna meiðsla.
Kielce er með tvö stig í efsta sæti A-riðils eftir tvo leiki en Pick Szeged er á botninum án stiga.
Þá vann Aalborg níu marka sigur gegn Motor Zaporozhye í Danmörku, 38:29. en danska liðið leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 17:13.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aalborgar en liðið er með fullt hús stiga eða 4 stig í efsta sæti B-riðils.