Valur mun ekki taka þátt í Evrópubikar kvenna í handknattleik í vetur. Frá þessu er greint á netmiðlinum handbolti.is.
Miðillinn hefur þetta eftir Ágústi Jóhannssyni þjálfara liðsins en Valur átti að mæta spænska liðinu Málaga í október í 2. umferð keppninnar.
Áður hafði verið tilkynnt um að karlalið Vals myndi hætta við þátttöku í Evrópukeppni í vetur.