Útlit er fyrir að karlalið FH í handknattleik sé á leiðinni í ferðalag til Tékklands í desember miðað við það sem fram kemur hjá Ásgeiri Jónssyni í samtali við Handbolta.is.
Ásgeir er formaður handknattleiksdeildar FH og Handbolti.is ræddi við hann um Evrópuleikina sem fram undan eru gegn tékkneska liðinu Robe Zubri.
Í kórónuveirufaraldrinum hafa íþróttalið reynt að draga úr ferðalögum og var því búist við að annaðhvort yrðu báðir leikirnir á Íslandi eða báðir í Tékklandi. Að sögn Ásgeirs bendir allt til þess að leikið verði heima og að heiman eins og vanalegt er í Evrópukeppnum þegar ekki geisar heimsfaraldur.
Ekki sé þó komin niðurstaða í málið.