Knattspyrnumaðurinn Thomas Müller segir að þýska landsliðið í knattspyrnu sé undir gríðarlega mikilli pressu eftir tapið fyrir Mexíkó um helgina.
Þrátt fyrir mikla reynslu og gæði í þýska hópnum voru Þjóðverjar heppnir að tapa ekki stærra fyrir sprækum Mexíkóum sem vörðust fimlega og beittu skæðum skyndisóknum þegar þeir unnu boltann: „Þetta minnti á leikinn á móti Sádi-Arabíu. Við gefum mótherjanum of mikið pláss til þess að sækja í þegar við erum með boltann.“
Þýskaland spilar við Svíþjóð á laugardaginn og verður að sigra til þess að eiga möguleika að enda efstir í riðlinum: „Pressan er gríðarleg. Það er ekki pláss fyrir fleiri mistök. Það er eins og útsláttarkeppnin sé hafin. Við vildum ekki vera í þessari stöðu. Við vildum komast hjá því. Núna þurfum við að höndla hana.“