„Hann er eins og púrtvín“

Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Marokkó í gær.
Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Marokkó í gær. AFP

„Hann er eins og púrtvín. Hann veit hvernig er best að bæta getu sína og aldur,“ segir Fernando Santos landsliðsþjálfari Portúgala um Cristiano Ronaldo.

Ronaldo skoraði sigurmark Portúgala í 1:0 sigri gegn Marokkó í gær og hann hefur þar með skorað fjögur mörk á HM og öll mörk Portúgala á mótinu.

Hann er stöðugt að þróast. Hann þekkir sjálfan sig og hann veit hvað hann getur gert. Það sem hann gerir núna er ekki það sem hann gerði fyrir þremur eða fjórum árum og ekki það sem hann mun gera á næstu árum,“ sagði Santos en Portúgalar eru jafnir Spánverjum með 4 stig í B-riðlinum, Íranar eru með eitt stig og Marokkó er án stiga.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka