Nígería og Ísland mætast í annarri umferð D-riðils heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í dag í Volgograd klukkan 15 að íslenskum tíma.
Ísland gerði 1:1 jafntefli við Króatíu í fyrstu umferð D-riðils en Nígería tapaði 2:0 fyrir Króatíu. Króatar unnu svo 3:0 sigur á Argentínu í gær og eru öruggir áfram í sextán liða úrslitin. Fari svo að Ísland vinni í dag dugar liðinu jafntefli gegn Króatíu til þess að komast áfram í sextán liða úrslit keppninnar.
Björn Bergmann kom inn á sem varamaður á 71. mínútu en hefur ekki komist í takt við leikinn.
AFP
Íslenskir stuðningsmenn taka víkingaklappið í stúkunni.
AFP
Ahmed Musa er búinn að tvöfalda forystu Nígeríu.
AFP
Ragnar Sigurðsson fékk skurð á höfuðið á 50. mínútu og þurfti að fara út af vegna meiðsla.
AFP
Leikmenn Nígeríu fagna marki Ahmed Mousa.
AFP
Ahmed Musa kemur Nígeríu yfir á 49. mínútu.
AFP
Alfreð Finnbogason fékk besta færi fyrri hálfleiks.
AFP
Íslendingar í góðum gír í stúkunni.
mbl.is/Eggert
Heimir Hallgrímsson stýrir sínum mönnum á hliðarlínunni.
AFP
Hörður Björgvin brýtur á Victor Moses.
AFP
Jón Daði Böðvarsson í baráttunni við Leon Balogun, varnarmann Nígeríu.
AFP
Kári Árnason í baráttunni við varnarmenn Nígeríu.
AFP
Francis Uzoho kýlir boltann frá eftir aukaspyrnu.
AFP
Rúrik Gíslason í baráttunni við Leon Balogun.
AFP
Heimir Hallgrímsson sposkur á svip á hliðarlínunni.
AFP
Íslenska hafið á Volgograd vellinum.
AFP
Leikmenn beggja liða hita upp á vellinum í dag.
AFP
Stuðningsmenn Nígeríu eru mættir á völlinn.
AFP
Íslendingar voru duglegir að skoða sig um í Volgograd í dag.
AFP
Vígalegur víkingur í stúkunni á Valgograd vellinum í dag.
AFP
Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá stuðningsmönnum íslenska liðsins í stúkunni.
AFP