„Maður finnur það alveg að væntingarnar eru miklar núna,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.
Gísli Þorgeir, sem er 23 ára gamall, fór á kostum með Þýskalandsmeisturum Magdeburg á síðustu leiktíð en margir af lykilmönnum íslenska landsliðsins í dag leika með mörgum af sterkustu félagsliðum heims.
„Markmiðin okkar eru klár og við ætlum okkur á verðlaunapall í janúar og stærsti draumurinn er að fá gullverðlaun með landsliðinu,“ sagði Gísli Þorgeir.
Ég hlakka til að sjá svipinn á Gumma Gumm þegar hann sér þetta, skaut undirritaður þá inn í.
„Ég væri endilega til í að vera með honum þá,“ bætti Gísli Þorgeir við í léttum tón.