Ástþór vekur athygli í Bosníu

Á heimasíðu körfuknattleikssambands Evrópu, Fiba Europe, er hægt að kjósa á milli tólf leikmanna sem þótt hafa skarað fram úr í b-deild Evrópukeppni U16 ára landsliða sem fram fer í Sarajevo. 

Á meðal þeirra leikmanna sem lesendur geta kosið á milli er Íslendingurinn Ástþór Svalason sem verið hefur áberandi í leikjum íslenska liðsins í mótinu. 

Hér er hægt að kjósa

Ísland mætir Bosníu á morgun í 8-liða úrslitum b-deildarinnar. Tvö efstu liðin komast í a-deildina að ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert