„Þetta var mjög erfitt tap. Við lögðum allt í þetta en þeir settu tvö stór skot í lokin, sem er munurinn. Stundum er þetta svona,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Þórs Þ., eftir afar svekkjandi 86:85-tap fyrir KR á útivelli í 3. umferð Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld.
„Við spiluðum fínt í þessum leik og hefðum átt að klára hann. Við verðum að halda áfram, taka lærdóm af þessu og vinna næst.“
Þór Þ. var í fínni stöðu þegar lítið var eftir en tvær þriggja stiga körfur frá Dino Stipcic og Sigurði Þorvaldssyni komu KR-ingum yfir á lokakaflanum. Baldur segir ekkert stress hafa tekið yfir hjá sínum mönnum á þeim tímapunkti.
„Það var ekkert stress í okkar mönnum. Við spiluðum alveg til enda en svona er þessi íþrótt. Það er eitt stórt skot hér og þar sem ræður úrslitum. Í þetta skiptið settu þeir það og ekki við,“ sagði Baldur.