Landsliðskonan unga með í kvöld

Jana Falsdóttir í leik með Njarðvík.
Jana Falsdóttir í leik með Njarðvík. Kristinn Magnússon

Jana Falsdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, verður leikfær fyrir þriðja leik Njarðvíkur gegn Grindavík í undanúrslitum Íslandsmótsins í Smáranum í Kópavogi í kvöld.

Jana, sem er 18 ára gömul, fékk þungt höfuðhögg í fyrsta leik liðanna í Smáranum um þarsíðustu helgi og var flutt á sjúkrahús.

Hún missti af öðrum leik liðanna í Ljónagryfjunni í Njarðvík í síðustu viku en samkvæmt Körfunni er hún leikfær fyrir þriðja leikinn.

Njarðvík er 2:0 yfir í einvíginu og tryggir sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert