Íþróttamaður frá San Marínó varð í morgun sá fyrsti í sögu landsins til að vinna verðlaun á Ólympíuleikum er Alessandra Perilli hreppti brons í skotfimi kvenna í Tókýó.
Perilli hitti 29 af 50 skotmörkum og dugði það henni til að hafna í þriðja sæti af þeim sex keppendum sem kepptu til úrslita. Zuzana Rehak Stefecekova frá Slóvakíu tók gullið en hún hitti 43 skotmörk. Þar áður hafði hún sett met í undankeppninni með því hitta í hvert eitt og einasta. Silfrið tók Kayle Browning frá Bandaríkjunum.
San Marínó er rúmlega 33 þúsund manna þjóð en frá landinu eru fimm keppendur í Tókýó. Fleiri hafa ekki keppt fyrir hönd þjóðarinnar á einum og sömu leikunum síðan í Atlanta árið 1996 en þá mættu sjö til leiks.