Dansmót Reykjavíkurleikanna fer fram í Laugardalshöllinni í dag. Pör alls staðar að úr heiminum eru komin til landsins til að etja kappi við íslensku pörin.
Á meðal erlendu paranna sem taka þátt eru fimmfaldir meistarar sem koma alla leið frá Kirgistan sem og lettneskir meistarar og kanadískir meistarar. Þessi pör eru öll mjög ofarlega á heimslistanum og verður spennandi að sjá þau keppa við íslensku pörin.
Á vef Dansíþróttasambands Íslands er hægt að finna keppendalista, dagskrá og fylgjast með gangi mála.