Sundmóti Reykjavíkurleikanna 2023 er lokið með frábærum árangri. Mörg mótsmet voru sett, tíu íslenskir sundmenn náðu lágmörkum og Íslandsmet féllu.
Anton Sveinn McKee úr SH fullkomnaði þrennuna í dag þar sem hann sigraði í 50, 100 og 200 metra bringusundi yfir helgina. Hann tryggði sig auk þess inn á HM50 í Fukuoka í Japan, sem mun fara fram frá 23. til 30. júlí.
Anton Sveinn sigraði í 50 metra og 200 metra bringusundi í dag. Þá sigraði Símon Elías Statkevicius úr SH í 100 metra flugsundi karla.
Veitt voru verðlaun fyrir stigahæstu afrekin.
Ljósmynd/Sundsamband Íslands
Uppskeran var góð um helgina en tíu sundmenn náðu lágmörkum fyrir mót ársins. Það þykir boða góðan árangur að margir sundmenn eru að ná lágmörkum á stórmótin í sumar svona snemma á tímabilinu.
- Snorri Dagur Einarsson, SH, náði lágmarki á EMU í 50 m bringusundi
- Hólmar Grétarsson, SH, náði lágmarki á EYOF í 400 m fjórsundi og NÆM í 400 m fjórsundi og 400 m skriðsundi
- Magnús Víðir Jónsson, SH, náði lágmarki inn á NÆM í 200 m og 1500 m skriðsundi.
- Ásdís Steindórsdóttir, Breiðablik, náði lágmarki inn á NÆM í 800 m skriðsundi.
- Ylfa Lind Kristmannsdóttir, Ármanni náði inn á NÆM í 100 m baksundi
- Ástrós Lovísa Hauksdóttir, ÍRB, náði lágmarki á NÆM í 100 m baksundi.
- Vala Dís Cicero, SH, inná EYOF og NÆM í 100 m og 200 m skriðsundi.
- Einar Margeir Ásgeirsson, ÍA, náði lágmarki á EMU í 50 m bringusundi.
- Sólveig Freyja Hákonardóttir, Breiðablik, náði lágmarki á NÆM í 400 m skriðsundi.
- Anton Sveinn Mckee, SH, náði lágmarki á HM50 í 200 m bringusundi
Sigurvegarar dagsins í hverri grein:
- 50 m baksund kvenna: Danielle Hill, Larne SC
- 50 m bringusund karla: Anton Sveinn McKee, SH
- 50 m flugsund kvenna: Martina Cibulkova, Vskuk
- 50 m skriðsund karla: Thomas Leggett, Larne SC
- 400 m skriðsund kvenna: Beatrice Varley, Playmouth Leander
- 200 m fjórsund karla: John Mr Britton, Ealing SC
- 200 m baksund kvenna: Danielle Hill, Larne SC
- 100 m baksund karla: Gideon Hollinsky, Plymouth Leander
- 100 m bringusund kvenna: Georgia Gussey, Plymouth Leander
- 200 m bringusund karla: Anton Sveinn Mckee, SH
- 200 m flugsund kvenna: Evangeline Belt, Plymouth Leander
- 100 m flugsund karla: Símon Elías Statkevicius, SH
- 100 m skriðsund kvenna: Danielle Hill, Larne SC
- 200 m skriðsund karla: Thomas Leggett, Larne SC
Peningaverðlaun fyrir bestan árangur helgarinnar samkvæmt stigatöflu:
Í lok móts voru veittar viðurkenningar fyrir fimm bestu afrek helgarinnar samkvæmt stigagjöf FINA, Alþjóða sundsambandsins, þar sem greiddar eru 1.000 evrur fyrir stigahæsta afrekið, 700 evrur fyrir annað sætið, 500 evrur fyrir þriðja sætið, 200 evrur fyrir fjórða sætið og sá sem endar í fimmta sæti fær 100 evrur.
- Í fyrsta sæti var Anton Sveinn McKee, SH, fyrir 200 m bringusund, 862 stig
- Í öðru sæti var Danielle Hill, Larne SC, fyrir 50 m baksund, 827 stig
- Í þriðja sæti var Beatrice Varley, Playmouth Leander, fyrir 200 m skriðsund, 769 stig
- Í fjórða sæti var Steingerður Hauksdóttir, SH, fyrir 50 m baksund, 759 stig
- Í fimmta sæti var Thomas Leggett, Larne SC fyrir 100 m skriðsund, 741 stig