Hannes metur áhrifaþætti hrunsins

Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson. mbl.is

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vinnur næsta árið að verkefni þar sem metnir verða erlendir áhrifaþættir bankahrunsins haustið 2008. Í dag undirrituðu fjármála- og efnahagsráðuneytið og stofnunin samning vegna verkefnisins, en miðað er við að því ljúki sumarið 2015.

Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur umsjón með verkinu, segir í fréttatilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins.  Verkið skiptist í fjóra meginhluta:

Rannsókn á forsendum bandaríska seðlabankans fyrir gjaldeyrisskiptasamningum og neitun á slíkum samningum

Rannsókn á forsendum breska fjármálaeftirlitsins fyrir lokun sumra banka í fjármálakreppunni 2007–2008 og björgun annarra

Rannsókn á forsendum bresku ríkisstjórnarinnar fyrir því að nota lög gegn hryðjuverkum til að loka íslenskum banka

Mat á tjóni íslenskra banka og fyrirtækja á skyndisölu ýmissa eigna, sem knúin var fram með ákvörðunum erlendra stjórnvalda eða fyrirtækja

Innlendir og erlendir aðilar verða fengnir til aðstoðar, rætt við þá eða gagna aflað hjá þeim, eftir því sem kostur er. Þar má nefna hagfræðinga, fyrrverandi fjármála- og forsætisráðherra í Bretlandi, fyrrverandi seðlabankastjóra Bretlands, fyrrverandi bankastjóra seðlabanka New York-ríkis o.fl. Hvað íslenska banka og fyrirtæki snertir má nefna að rætt verður við eða aflað gagna hjá fyrrverandi forsvarsmönnum íslenskra banka og forsvarsmönnum slitastjórna bankanna.

Verkið verður unnið á tímabilinu júlí 2014 til júlí 2015, en undirbúningur hófst haustið 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
ISK
USD
EUR
GBP
CAD
DKK
NOK
SEK
Fleira áhugavert
ISK
USD
EUR
GBP
CAD
DKK
NOK
SEK
Loka