Arion banki hefur birt lista yfir stærstu hluthafa í bankanum miðað við 20. júní. Stærsti einstaki hluthafinn er áfram Kaupskil. Hlutur félagsins nemur 32,67% og þar af eru 15,42% í formu sænskra heimildarskírteina.
Næststærstur er bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital sem fer með 9,99% hlut í gegnum félagið TCA New Sidecar III.
Breski vogunarsjóðurinn á þriðja stærsta hlutinn gegnum Trinity Investments Designated Activity Company, eða 9,17%.
Sænski bankinn SEB fer með 29,17% hlut fyrir hönd handhafa sænskra heimildarskírteina. Hæsta einstaka úthlutun í formi SDR bréfa nam 1,15% af heildar útgefnum bréfum bankans.
Hér eru stærstu hluthafar í Arion banka:
Greint var frá því í Morgunblaðinu að fjórir stærstu lífeyrissjóðir landsins hefðu borið lítið úr býtum í hlutafjárútboði í Arion banka. Þannig er heildareign sjóðanna rétt undir 1,8% af útgefnu hlutafé bankans.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í stýringu hjá Arion banka, fékk úthlutað 8 milljónum bréfa í bankanum, sem jafngildir 0,4% í heildarhlutafé bankans og Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna, sem einnig er í stýringu hjá Arion banka, tryggði sér 450 þúsund hluti í bankaútboðinu.