Mikil dýfa í kauphöllum í morgun

Í kjölfar frétta af stökkbreyttri veiru og yfirlýsinga ríkja um …
Í kjölfar frétta af stökkbreyttri veiru og yfirlýsinga ríkja um að stöðva farþegaflug frá Bretlandi hafa kauphallir víða tekið dýfu, sértaklega bresku kauphöllinni. AFP

Gengi sterlingspunds hefur fallið mikið og eins hafa hlutabréf í bresku kauphöllinni tekið dýfu í morgun. Fram kemur í umfjöllun Sky News að þessar miklu sveiflur koma í kjölfar yfirlýsinga fleiri ríkja í Evrópu um að þau myndu loka á flug frá Bretlandi eftir að nýtt stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar greindist í landinu.

Sterlingspundið féll meira en þrjú prósent gegn bandaríkjadal í morgun og stendur í innan við 1,32 dali. Þá féll gengi pundsins um tvö prósent gagnvart evru og er nú í 1,08 evrum.

Bréf flugfélaga hrynja

Þá hefur gengi hlutabréfa í kauphöllinni í London fallið um 3% í morgun. FTSE 100 vísitala kauphallarinnar féll um 200 stig eða um 3,2%. Sömu sögu er að segja af öðrum vísitölum og hefur FTSE 250 fallið um 3,5% og FTSE 350 um 3%.

Mesta skellinn í morgun fengu flugfélögin og lækkaði gengi bréfa International Airlines Group, móðufélags British Airways, um 19% og EasyJeat um 15%. Jafnframt féll gengi bréfa  Rolls-Royce um 12%, en félagið framleiðir meðal annars flugvélahreyfla.

Einnig hefur virði bréfa í bönkum lækkað og tóku hlutabréf Lloyds Banking Group og Barclays dýfu. Auk þess féllu bréf dagvöruverslunarrisans Associated British Foods og verslunarmiðstöðvareigendans Hammerson.

Einnig samdráttur í Evrópu

Lækkanir hafa einnig átt sér stað á meginlandinu í morgun og varð lækkun á frönsku CAC vísitölunni um 3,4%, 3,5% lækkun varð á þýsku DAX vísitölunni og nam lækkunin 3,1% í ítölsku kauphöllinni.

Eins hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað um þrjá bandaríkjadali á tunnu og stendur hún nú í 49 bandaríkjadölum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK