Nauðsynlegt er að hvert einasta fyrirtæki og hver einasta stofnun hugsi sinn gang og grípi til aðgerða til að hindra að kynbundin mismunun og áreitni eigi sér stað. Þetta sagði Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, á sérstökum fundi fyrir starfsmenn fyrirtækisins.
Útgerðin boðaði til fundarins á föstudag og var Magnús Orri Schram, stjórnarmaður UN Women á Íslandi, fenginn til að halda fyrirlestur. Fjallaði hann þar um eðli #metoo-byltingarinnar og beindi sjónum sérstaklega að Íslandi. Þá lagði hann áherslu á ábyrgð karlmanna í breyttum heimi og hvatti karlmenn til að endurskoða viðhorf sín og hegðun í garð kvenna.
Gunnþór tilkynnti að framvegis myndu hefðbundin dagatöl, prýdd fáklæddum eða berum konum, ekki fara upp á vegg á vinnustöðum og í skipum Síldarvinnslunnar. Nú við upphaf nýs árs, þegar sendingar bærust af slíkum dagatölum, færu þau „öll með tölu beint í ruslið“.
Enn fremur lásu upp á fundinum þær Ingibjörg Þórðardóttir, Birta Sæmundsdóttir og Sólveig Helga Björgúlfsdóttir frásagnir kvenna sem orðið hafa fyrir áreitni. Um sjötíu manns sóttu fundinn og höfðu margir orð á því að þarna væri um þarft og gott framtak að ræða, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |