HB Grandi hefur undirritað samning við Marel um kaup á FleXicut kerfi og pökkunarflokkara til notkunar um borð í nýjum frystitogara félagsins.
Fram kemur í tilkynningu frá Marel að fyrirtækið hafi selt á fjórða tug FleXicut vatnsskurðarvéla síðan tækið var fyrst kynnt á markað árið 2014 og er þetta fimmta vélin sem fer um borð í togara.
Segir í tilkynningunni að FleXicut kerfið verður notað til að vinna beinlaus flök um borð og gerir HB Granda kleift að auka verðmæti afurða sem unnar eru á sjó.
„FleXicut Marine mun greina hvert flak með röntgentækni til meta þyngd og staðsetningu beingarðs auk þess að skera hann úr flakinu með vatnsskurði. Jafnframt hlutar hún flakið eftir óskum með tveimur hefðbundnum skurðarhnífum.“
Með tilkomu kerfisins sé mögulegt að vinna beinlaus ýsu-, þorsk- og ufsaflök með og án roðs um borð, auk þess að skera flökin í bita á ýmsa vegu og dreifa afurðunum með FleXisort.
„FleXisort dreifikerfið fjarlægir beingarð og sporða úr afurðastraumnum yfir á önnur færibönd, en sendir flök og bita inn á pökkunarflokkara. Settir verða upp tveir pökkunarflokkarar til þess að hægt sé að pakka tvennslags afurðum samtímis, t.d. bakflökum og hnökkum.“
„Það er okkur sönn ánægja að skapa ný viðmið varðandi flakavinnslu um borð í samvinnu við HB Granda,“ segir Sigurður Ólason, framkvæmdastjóri Marel Fish.
Spænska skipasmíðastöðin Astilleros Armon Gijon, S.A. sér um smíði nýja frystitogarans og mun uppsetning Marel búnaðarins fara fram í þriðja árshluta 2018.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.338 kg |
Ýsa | 2.064 kg |
Steinbítur | 85 kg |
Langa | 10 kg |
Samtals | 5.497 kg |
20.9.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.123 kg |
Ýsa | 2.373 kg |
Langa | 703 kg |
Steinbítur | 121 kg |
Keila | 116 kg |
Karfi | 115 kg |
Ufsi | 93 kg |
Hlýri | 24 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 10.682 kg |
20.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.247 kg |
Karfi | 351 kg |
Keila | 253 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 7.874 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.338 kg |
Ýsa | 2.064 kg |
Steinbítur | 85 kg |
Langa | 10 kg |
Samtals | 5.497 kg |
20.9.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.123 kg |
Ýsa | 2.373 kg |
Langa | 703 kg |
Steinbítur | 121 kg |
Keila | 116 kg |
Karfi | 115 kg |
Ufsi | 93 kg |
Hlýri | 24 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 10.682 kg |
20.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.247 kg |
Karfi | 351 kg |
Keila | 253 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 7.874 kg |