Stálu tveimur tonnum af frosnum rækjum

Þjófnaðurinn á Hvammstanga er með því undarlegasta enda er ekki …
Þjófnaðurinn á Hvammstanga er með því undarlegasta enda er ekki vitað hvað óprúttnir aðilar ætla sér með tvö tonn af rækjum. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveimur tonnum af frosnum rækjum var stolið á Hvammstanga um helgina og er málið nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Talið er að þjófnaðurinn hafi verið vel skipulagður en hann uppgötvaðist á laugardagsmorgun.

„Þetta er svolítið leiðinlegt,“ segir Baldvin Þór Bergþórsson, verkefnisstjóri rækjuvinnslunnar Meleyrar á Hvammstanga, í samtali við 200 mílur. Hann útskýrir að um sé að ræða töluvert tjón fyrir fyrirtækið og að verðmæti varningsins sem var stolið geti verið um fimm til sex milljónir króna.

„Ég veit ekki hvernig menn geta komið þessu í verð. Þetta var allt í frosti þannig að það er einhver á bak við þetta sem er með góða geymslu. Og það þarf einhver að kaupa þetta, maður notar þetta ekki heima hjá sér,“ segir Baldvin Þór. Þá hefur lögreglan mætt aftur á vettvang í dag og er meðal annars unnið að því að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum fyrirtækisins. Baldvin Þór segir litlar skemmdir hafa verið unnar á eignum við innbrotið.

Ekki til einkanota

„Það er alveg ljóst að menn hafa verið vel undirbúnir og vitað hvað þeir voru að gera. Þú setur ekki tvö tonn af rækju í fjölskyldubílinn og keyrir í burtu. Þú þarft einhver flutningstæki, geymslustað og einhvern kaupanda, þó að ekkert sé hægt að fullyrða um það má ætla að þetta sé ekki ætlað til einkanota,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, í samtali við 200 mílur.

Hann segir að nú sé verið að fara yfir þær vísbendingar sem eru til staðar í málinu. „Ef almenningur getur veit okkur einhverjar upplýsingar um þetta mál, hvetjum við þá sömu til að hafa samband við lögregluna á Norðurlandi vestra.“

RÚV fjallaði fyrst um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »