Margir sækjast nú eftir því að komast á sjó ef marka má upplifun skipstjórans á Blængi. Telur hann ástæðuna vera að það þrengi að efnahag nú þegar atvinnuleysi er meira en verið hefur.
Borið hefur á því að undanförnu að hringt sé um borð og spurt um pláss á skipinu, segir skipstjórinn Bjarni Ólafur Hjálmarsson á vef Síldarvinnslunnar. „Það virðist vera að þrengja að víða. Ég hef ekki upplifað svona margar hringingar áður. Það koma engin símtöl frá Austfirðingum, þau koma flest frá höfuðborgarsvæðinu og Akureyri og það eru bæði vanir og óvanir menn sem hafa samband.“
Síðasta túr Blængs NK á fiskveiðiárinu lauk í gær er togarinn kom til hafnar í Neskaupstað. Skilaði veiðiferðin 726 tonnum úr sjó að verðmæti 265 milljónir króna og var um helmingur aflans ufsi auk þorsks, gullkarfa og grálúðu.
„Í túrnum þurftum við að veiða það sem eftir var að veiða á kvótaárinu,“ er haft eftir Bjarna Ólafi Hjálmarssyni, skipstjóra á Blængi. „Við vorum mest fyrir vestan frá Hala og vestur á Hampiðjutorg og síðan vorum við í grálúðu fyrir austan land. Það var gott veður allan tímann og þá er ekki hægt að kvarta. Auk þess má segja að túrinn hafi einkennst af ágætiskroppi þannig að menn eru sáttir,“ segir hann.
Landað verður úr Blængi á morgun og gert er ráð fyrir að hann haldi í fyrstu veiðiferð nýs kvótaárs síðdegis á mánudag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.9.24 | 543,40 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.9.24 | 437,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.9.24 | 259,06 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.9.24 | 272,05 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.9.24 | 214,71 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.9.24 | 235,37 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.9.24 | 266,48 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 23.9.24 | 280,00 kr/kg |
23.9.24 Toni NS 20 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 3.880 kg |
Ýsa | 1.411 kg |
Keila | 44 kg |
Steinbítur | 44 kg |
Ufsi | 20 kg |
Hlýri | 19 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 5.422 kg |
23.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.885 kg |
Ýsa | 1.383 kg |
Keila | 140 kg |
Hlýri | 11 kg |
Samtals | 3.419 kg |
23.9.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.686 kg |
Skarkoli | 2.816 kg |
Sandkoli | 365 kg |
Þykkvalúra | 38 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ýsa | 13 kg |
Skötuselur | 3 kg |
Samtals | 7.942 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.9.24 | 543,40 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.9.24 | 437,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.9.24 | 259,06 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.9.24 | 272,05 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.9.24 | 214,71 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.9.24 | 235,37 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.9.24 | 266,48 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 23.9.24 | 280,00 kr/kg |
23.9.24 Toni NS 20 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 3.880 kg |
Ýsa | 1.411 kg |
Keila | 44 kg |
Steinbítur | 44 kg |
Ufsi | 20 kg |
Hlýri | 19 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 5.422 kg |
23.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.885 kg |
Ýsa | 1.383 kg |
Keila | 140 kg |
Hlýri | 11 kg |
Samtals | 3.419 kg |
23.9.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.686 kg |
Skarkoli | 2.816 kg |
Sandkoli | 365 kg |
Þykkvalúra | 38 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ýsa | 13 kg |
Skötuselur | 3 kg |
Samtals | 7.942 kg |