Alls greiddu íslensk útgerðarfyrirtæki 628,5 milljónir króna í veiðigjöld í janúar síðastliðnum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag og er vísað í sundurliðun veiðigjalda á vef Fiskistofu.
Á Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi halda úti, er vakin athygli á að í janúar hafi tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum verið 70% hærri en í sama mánuði árið á undan þegar þær námu 371 milljón króna.
Samanlagt greiddu þær tíu útgerðir sem greiddu mest 376,4 milljónir króna eða um 60% allra greiddra veiðigjalda. Þær tuttugu sem greiddu mest skiluðu 505,5 milljónum í ríkissjóð sem er 80% allra greiddra veiðigjalda í janúar.
„Forsendur þeirrar skattheimtu sem felst í veiðigjaldinu eru ekki flóknar. Forsendurnar byggjast hins vegar á afkomu í fiskveiðum, sem getur verið afar sveiflukennd á milli ára, enda fjölmörgum óvissuþáttum háð, allt frá duttlungum náttúrunnar til pólitískrar áhættu í fjarlægum löndum. Í kringum 20 fisktegundir bera veiðigjald ár hvert og er gjaldið reiknað sérstaklega fyrir hverja þeirra. Þar getur þróunin á milli ára verið æði misjöfn, meðal annars vegna markaðsaðstæðna sem geta verið afar mismunandi á milli tegunda. Í stuttu máli má segja að veiðigjald nemi um 33% af afkomu fiskveiða, sem reiknað er til krónu á kílógramm landaðs óslægðs afla,“ segir á Radarnum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.9.23 | 543,89 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.9.23 | 592,02 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.9.23 | 268,67 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.9.23 | 206,99 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.9.23 | 253,88 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.9.23 | 304,22 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.9.23 | 279,93 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
22.9.23 Særún EA 251 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.359 kg |
Ýsa | 734 kg |
Ufsi | 220 kg |
Steinbítur | 6 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 2.323 kg |
22.9.23 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Þorskur | 399 kg |
Ýsa | 240 kg |
Steinbítur | 72 kg |
Langa | 16 kg |
Ufsi | 2 kg |
Keila | 2 kg |
Samtals | 731 kg |
22.9.23 Tjálfi SU 63 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 453 kg |
Þorskur | 209 kg |
Skarkoli | 191 kg |
Sandkoli | 20 kg |
Samtals | 873 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.9.23 | 543,89 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.9.23 | 592,02 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.9.23 | 268,67 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.9.23 | 206,99 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.9.23 | 253,88 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.9.23 | 304,22 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.9.23 | 279,93 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
22.9.23 Særún EA 251 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.359 kg |
Ýsa | 734 kg |
Ufsi | 220 kg |
Steinbítur | 6 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 2.323 kg |
22.9.23 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Þorskur | 399 kg |
Ýsa | 240 kg |
Steinbítur | 72 kg |
Langa | 16 kg |
Ufsi | 2 kg |
Keila | 2 kg |
Samtals | 731 kg |
22.9.23 Tjálfi SU 63 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 453 kg |
Þorskur | 209 kg |
Skarkoli | 191 kg |
Sandkoli | 20 kg |
Samtals | 873 kg |