Myndskeið: Báturinn alelda á svipstundu

Eldur kom upp í bátnum Ronju SH 53 í Stykkishólmi í gærkvöldi. Einn var um borð þegar eldsins varð vart og náði hann að koma sér um borð í gúmmíbát áður en eldurinn gleypti bátinn. 

Báturinn er trefjaplastbátur sem aðallega er notaður til bláskeljaræktunar og varð hann alelda á svipstundu. Var hann skammt frá landi þegar eldsins varð vart að sögn Einars Þórs Strand, slökkviliðsstjóra í Stykkishólmi og svæðisstjóra hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 

Ronja SH 53 varð alelda á svipstundu.
Ronja SH 53 varð alelda á svipstundu.

„Við gerðum ekkert. Við sáum þegar við komum á svæðið að engu yrðu bjargað. Við gæslan tókum þá ákvörðun í sameiningu að best yrði að láta þetta hafa sinn gang. Að auki var erfitt að komast að þessu. Menn hefðu þurft að vaða upp að mitti og enn verra var að fara sjóleiðina,“ segir Einar.   

Bátnum hvolfdi um klukkan eitt í nótt að sögn Einars og slokknaði eldurinn við það. Sem stendur sést brakið ekki en gera menn ráð fyrir því að báturinn muni sjást aftur um þrjúleytið í dag þegar fjarar að nýju. Verkefni tryggingarfélags og Umhverfisstofnunar er að fjarlægja flakið. 

Báturinn var 50-100 metra frá landi og manninum tókst að …
Báturinn var 50-100 metra frá landi og manninum tókst að koma sér í gúmmíbát.

Engin olíubrák 

„Ég fór að skoða þetta í morgun og ekki var hægt að sjá neina olíubrák frá bátnum. Ég hugsa að nær allt eldsneytið hafi brunnið. Ef við hefðum gert eitthvað hefði líklega meiri olía farið í sjóinn og við mátum það þannig að minnsti skaðinn myndi verða með því að gera ekkert.“

Að sögn Einars var sjómanninum brugðið en hann sakaði ekki að öðru leyti. Sat hann í gúmmíbátnum í 15-20 mínútur áður en honum var bjargað af björgunarsveit.

Báturinn féll yfir um 1 leytið í nótt.
Báturinn féll yfir um 1 leytið í nótt.
mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.23 477,12 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.23 465,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.23 457,14 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.23 354,82 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.23 280,17 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.23 336,17 kr/kg
Djúpkarfi 31.5.23 227,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.23 357,68 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 14.5.23 192,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.23 Hrefna SF-052 Handfæri
Þorskur 565 kg
Ufsi 85 kg
Langa 6 kg
Samtals 656 kg
31.5.23 Birna SF-147 Handfæri
Ufsi 1.071 kg
Þorskur 794 kg
Samtals 1.865 kg
31.5.23 Lundi ST-011 Handfæri
Þorskur 749 kg
Samtals 749 kg
31.5.23 Þorbjörg RE-006 Handfæri
Þorskur 756 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 766 kg
31.5.23 Ragney HF-042 Handfæri
Þorskur 703 kg
Samtals 703 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.23 477,12 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.23 465,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.23 457,14 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.23 354,82 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.23 280,17 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.23 336,17 kr/kg
Djúpkarfi 31.5.23 227,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.23 357,68 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 14.5.23 192,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.23 Hrefna SF-052 Handfæri
Þorskur 565 kg
Ufsi 85 kg
Langa 6 kg
Samtals 656 kg
31.5.23 Birna SF-147 Handfæri
Ufsi 1.071 kg
Þorskur 794 kg
Samtals 1.865 kg
31.5.23 Lundi ST-011 Handfæri
Þorskur 749 kg
Samtals 749 kg
31.5.23 Þorbjörg RE-006 Handfæri
Þorskur 756 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 766 kg
31.5.23 Ragney HF-042 Handfæri
Þorskur 703 kg
Samtals 703 kg

Skoða allar landanir »