Diljá nýtur lífsins í Portúgal

Sumarið | 18. júlí 2023

Diljá nýtur lífsins í Portúgal

Það væsir ekki um söngkonuna og Eurovision-stjörnuna Diljá Pétursdóttur sem hefur undanfarna daga notið lífsins í afar verðskulduðu fríi í Portúgal.

Diljá nýtur lífsins í Portúgal

Sumarið | 18. júlí 2023

Það væsir sannarlega ekki um tónlistarkonuna og Eurovision-stjörnuna Diljá Pétursdóttur. …
Það væsir sannarlega ekki um tónlistarkonuna og Eurovision-stjörnuna Diljá Pétursdóttur. Með henni á myndinni er Ísabella Cabrita. Samsett mynd

Það væsir ekki um söngkonuna og Eurovision-stjörnuna Diljá Pétursdóttur sem hefur undanfarna daga notið lífsins í afar verðskulduðu fríi í Portúgal.

Það væsir ekki um söngkonuna og Eurovision-stjörnuna Diljá Pétursdóttur sem hefur undanfarna daga notið lífsins í afar verðskulduðu fríi í Portúgal.

Vorið var óneitanlega annasamt hjá Diljá sem var fulltrúi Íslands í Eurovision-söngvakeppninni í Liverpool í maí síðastliðnum. 

Það er því ekkert annað í stöðunni en að njóta, en af myndum að dæma hefur Diljá varið ófáum stundum á ströndinni, í sjónum og við sundlaugina. Hún hefur verið dugleg að deila flottum myndum frá fríinu á samfélagsmiðlum, þar á meðal glæsilegum bikinímyndum. 

mbl.is