Hér er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar

Ferðumst innanlands | 28. júlí 2023

Hér er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar

Nú er komið að helgi og því um að gera að skoða hvar besta veðrið er að finna. Sam­kvæmt tjald­vef Bliku verður besta veðrið á eft­ir­töld­um tjaldsvæðum.

Hér er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar

Ferðumst innanlands | 28. júlí 2023

Enn og aftur er besta útileguveðrið á Suðurlandinu.
Enn og aftur er besta útileguveðrið á Suðurlandinu. Samsett mynd

Nú er komið að helgi og því um að gera að skoða hvar besta veðrið er að finna. Sam­kvæmt tjald­vef Bliku verður besta veðrið á eft­ir­töld­um tjaldsvæðum.

Nú er komið að helgi og því um að gera að skoða hvar besta veðrið er að finna. Sam­kvæmt tjald­vef Bliku verður besta veðrið á eft­ir­töld­um tjaldsvæðum.

Tjaldmiðstöðin Flúðum

Á Flúðum er von á góðu sum­ar­veðri yfir helg­ina. Spáð er 16 gráðum á föstu­dag og laug­ar­dag og 17 gráðum á sunnu­dag. Bú­ist er við að hálf­skýjað verði um helg­ina og eru eng­ir rign­ing­ar­drop­ar í kort­un­um.

Tjaldsvæðið á Flúðum er rúm­gott og fjöl­skyldu­vænt svæði við bakka Litlu-Laxár. Á tjaldsvæðinu er aðgang­ur að heitu og köldu vatni, raf­magni og gjald­frjálsri sturtu. Einnig er hér þvotta­vél til af­nota, þráðlaust net og hund­ar eru leyfðir á tjaldsvæðinu.

Flúðir.
Flúðir. mbl.is/Sigurður Bogi

Tjaldsvæðið Laugarvatni

Bú­ist er við nokkuð góðu sum­ar­veðri á Laug­ar­vatni. Spáð er 15 gráðum á föstudag og laug­ar­dag og 16 á sunnu­dag. Heiðskírt verður á föstudag en von er á að hálf­skýjað verði laugardag og sunnudag.

Tjaldsvæðið á Laug­ar­vatni er skjól­sælt og rúm­gott. Gott leik­svæði er fyr­ir börn og einnig er þar fót­bolta­völl­ur. Aðgengi er að köldu og heitu vatni, raf­magni, gjald­frjálsri sturtu og eru hund­ar leyfðir á svæðinu. Ald­urstak­mark er 20 ár og er mikið lagt upp úr því að gest­ir geti sofið rótt á næt­urn­ar.

Laugarvatn.
Laugarvatn. mbl.is/Sigurður Bogi

Tjaldsvæðið Árnesi

Við Árnes er von á góðu sum­ar­veðri yfir helg­ina. Bú­ist er við 16 gráða hita á föstu­dag og laug­ar­dag. Hins veg­ar er spáð allt að 17 gráðum á sunnu­dag. Bú­ist er við að hálf­skýjað verði um helg­ina og eru eng­ir rign­ing­ar­drop­ar í kort­un­um.

Tjaldsvæðið, sem stend­ur við mynni Þjórsár­dals, er stutt frá ýms­um nátt­úruperl­um og sögu­fræg­um stöðum og því um að gera að nýta helg­ina í að skoða sig um. Á svæðinu er aðgengi að köldu og heitu vatni, raf­magni, gjald­frjálsri sturtu og þvotta­vél. Hund­ar eru leyfðir á svæðinu.

Veitinga- og kaffistofan í Árnesi.
Veitinga- og kaffistofan í Árnesi. mbl.is/Árni Sæberg

Úthlíð í Biskupstungum

Von er á nokkuð góðu sumarveðri í Úthlíð um helgina. Spáð er 15 gráðum á föstudag og laug­ar­dag og 16 á sunnu­dag. Léttskýjað verður föstudag og laugardag en hálfskýjað á sunnudag.

Tjaldsvæðið er á holt­inu fyr­ir neðan veit­ingastaðinn Rétt­ina. Þar er eld­un­araðstaða, aðstaða til að borða inni og vaska upp og aðgengi að raf­magni, ásamt því að inn í verðinu er innifal­inn aðgang­ur að sturtu og heit­um potti. Einnig er hægt að kaupa aðgang að þvotta­vél og þurrk­ara.

Úthlíð.
Úthlíð. Ljósmynd/Úthlíð ferðaþjónusta

Tjaldsvæðið við Faxa

Bú­ist er við góðu veðri við Faxa yfir helg­ina. Spáð er 15 gráðum á föstudag og 16 gráðum á laug­ar­dag og sunnu­dag. Bú­ist er við að hálf­skýjað verði um helg­ina og eru eng­ir rign­ing­ar­drop­ar í kort­un­um.

Tjaldsvæðið er á fal­legu út­sýn­is­svæði við bakka Tungufljóts, við foss­inn Faxa og Tungna­rétt­ir. Um­hverfið er ró­legt og fal­legt og stutt er í alla helstu þjón­ustu. Á tjaldsvæðinu sjálfu er aðgengi að heitu og köldu vatni og raf­magni. Hund­ar eru leyfðir á svæðinu.

Fossinn Faxi.
Fossinn Faxi. Ljósmynd/Tripadvisor
mbl.is