Þrumuguðinn veiddi myndarlegan lax á Íslandi

Frægir á Íslandi | 2. október 2023

Stórleikarinn Chris Hemsworth er staddur á Íslandi um þessar mundir ásamt ellefu ára gamalli dóttur sinni, Indiu Rose. Feðginin hafa átt ævintýralega daga hér á klakanum og fóru meðal annars í veiði þar sem þau veiddu fallegan villtan lax.

Chris Hemsworth er líklega hve þekktastur fyrir hlutverk sitt sem …
Chris Hemsworth er líklega hve þekktastur fyrir hlutverk sitt sem þrumuguðinn Þór í Marvel-myndunum vinsælu. Samsett mynd

Stórleikarinn Chris Hemsworth er staddur á Íslandi um þessar mundir ásamt ellefu ára gamalli dóttur sinni, Indiu Rose. Feðginin hafa átt ævintýralega daga hér á klakanum og fóru meðal annars í veiði þar sem þau veiddu fallegan villtan lax.

Stórleikarinn Chris Hemsworth er staddur á Íslandi um þessar mundir ásamt ellefu ára gamalli dóttur sinni, Indiu Rose. Feðginin hafa átt ævintýralega daga hér á klakanum og fóru meðal annars í veiði þar sem þau veiddu fallegan villtan lax.

Hemsworth birti skemmtilega myndaröð frá veiðiferðinni í gær með yfirskriftinni: „Kvöldmaturinn græjaður, takk Indi!!“ Á myndunum má sjá feðginin klædd í vöðlur í fallegu haustveðri við ána, en á einni af myndunum heldur dóttir hans á myndarlegum laxi.

Leikarinn hefur verið duglegur að birta myndir frá Íslandsferðinni á Instagram og virðast feðginin aðallega hafa verið á ferðalagi um Suðurland. Þau skelltu sér í hestaferð skammt frá Hellu, fóru í klifur á Sólheimajökli og í fjórhjólaferð á svipuðum slóðum.

mbl.is