Clarkson mætti ásamt sjö ára syni sínum

Frægar fjölskyldur | 8. febrúar 2024

Clarkson mætti ásamt sjö ára syni sínum

Stórsöngkonan Kelly Clarkson vakti athygli á Grammy-verðlaunahátíðinni þegar hún mætti ásamt ungum syni sínum, hinum sjö ára gamla Remington Alexander. Mæðginin voru stórglæsileg er þau stilltu sér upp á rauða dreglinum.

Clarkson mætti ásamt sjö ára syni sínum

Frægar fjölskyldur | 8. febrúar 2024

Kelly Clarkson mætti ásamt syni sínum.
Kelly Clarkson mætti ásamt syni sínum. FRAZER HARRISON

Stórsöngkonan Kelly Clarkson vakti athygli á Grammy-verðlaunahátíðinni þegar hún mætti ásamt ungum syni sínum, hinum sjö ára gamla Remington Alexander. Mæðginin voru stórglæsileg er þau stilltu sér upp á rauða dreglinum.

Stórsöngkonan Kelly Clarkson vakti athygli á Grammy-verðlaunahátíðinni þegar hún mætti ásamt ungum syni sínum, hinum sjö ára gamla Remington Alexander. Mæðginin voru stórglæsileg er þau stilltu sér upp á rauða dreglinum.

Clarkson klæddist gullfallegum hvítum síðkjól frá tískuhúsi Jason Wu en Remington var mun djarfari í litavali en móðir sín. Sá klæddist vínrauðum flauels-jakkafötum og var einnig með litríkt blóm í hnappagati sem greip athygli ljósmyndara. 

Söngkonan var tilnefnd fyrir bestu poppplötu ársins (e. pop vocal album) Chemistry, en hún samdi plötuna eftir skilnað sinn við fyrrverandi eiginmann, umboðsmann og barnsföður, Brandon Blackstock. 

Mæðginin léku sér á rauða dreglinum.
Mæðginin léku sér á rauða dreglinum. AFP
View this post on Instagram

A post shared by People Magazine (@people)

mbl.is