Instagram: Það var allt að gerast!

Hverjir voru hvar | 18. mars 2024

Instagram: Það var allt að gerast!

Vikan á Instagram var ansi öflug og lífleg! Útlönd, afmæli, árshátíðir, ástin og afslöppun einkenndu færslur íslenskra áhrifavalda síðastliðna daga.

Instagram: Það var allt að gerast!

Hverjir voru hvar | 18. mars 2024

Ævintýrin eru á Instagram!
Ævintýrin eru á Instagram! Samsett mynd

Vikan á Instagram var ansi öflug og lífleg! Útlönd, afmæli, árshátíðir, ástin og afslöppun einkenndu færslur íslenskra áhrifavalda síðastliðna daga.

Vikan á Instagram var ansi öflug og lífleg! Útlönd, afmæli, árshátíðir, ástin og afslöppun einkenndu færslur íslenskra áhrifavalda síðastliðna daga.

Sunneva Eir Einarsdóttir hefur eytt dögunum heima ásamt sambýlismanni og hundum, en hún er að jafna sig eftir aðgerð. Tónlistarstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir heillaði samlanda sína með tónleikum í Hörpu og Friðþóra Sigurjónsdóttir, kærasta Prettyboitjokko, spókaði sig um Lundúnir. 

Á batavegi! 

Sam­fé­lags­miðla- og raun­veru­leika­stjarn­an Sunn­eva Ein­ars­dótt­ir er á bata­vegi eft­ir að hafa geng­ist und­ir aðgerð á dög­un­um. 

Setti þumalinn upp!

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson var meðal tilnefndra á Íslensku tónlistarverðlaunum á dögunum. Tónlistarmaðurinn laut í lægra haldi fyrir Laufeyju Lín Jónsdóttir en verðlaunaði sig með glæsilegum Louis Vuitton-bakpoka.

View this post on Instagram

A post shared by FRIÐRIK ÓMAR (@fromarinn)

Glæsilegt barnaafmæli!

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir hélt upp á fjögurra ára afmæli dóttur sinnar með glæsilegri Hvolpasveitar-veislu.

Heillaði Hörpu!

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir heillaði tónleikagesti Hörpunnar nýverið. Sjálf var hún alsæl yfir því að fá að spila fyrir samlanda sína. „Ég hef sjaldan fundið fyrir jafnmiklum stuðningi og ást. Ég sit hér á hótelherbergi í London í tárum yfir því hvað ég er stolt að vera íslensk.“

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)

Hvað er hann að hugsa?

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson var djúphygginn á svip á svarthvítri sjálfu sem hann deildi með fylgjendum sínum. 

View this post on Instagram

A post shared by Hljóðriti ehf (@hljodriti)

Bleikir hælar bæta daginn!

Helga Margrét Agnarsdóttir, laganemi, dansari og áhrifavaldur, sýndi stílinn. Takið eftir skónum!

Ástin er yndisleg!

Helgi Ómarsson fagnaði sínum heittelskaða, Pétri Svensson, í tilefni af afmælisdegi hans. 

Spegill, spegill herm þú mér!

Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, skellti í föstudagsspeglasjálfu.

Geggjað stuð!

Fanney Ingvarsdóttir dansaði nóttina á enda í brúðkaupi vinafólks síns.

Ofurgella í Lundúnum!

Friðþóra Sigurjónsdóttir, kærasta tónlistarmannsins Prettyboitjokko, spókaði sig um Lundúnir í trylltu dressi. 

Barnasturta!

Elísa Gróa Steinþórsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning og aðstoðarframkvæmdastjóri Miss Universe Iceland, á von á sínu fyrsta barni ásamt unnusta sínum, Elís Guðmundssyni. Hún á greinilega góða að sem komu henni á óvart með glæsilegri barnasturtu.

Veður fyrir leður!

Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir stillti sér upp í leðurbuxum og korsett-toppi, en hún átti viðburðarríka viku þar sem hún deildi meðal annars fæðingarsögu sinni.

Förðunardrottning í Skógarböðum!

Förðunarfræðingurinn Lilja Dís Smáradóttir skellti sér í Skógarböðin á Akureyri!

Sixpakk og sandur!

Fyrrverandi Crossfit-stjarnan Sólveig Sigurðardóttir naut lífsins til hins ýtrasta í Katar!

Hlaup, ræktin og góður matur!

Tónlistarmaðurinn Aron Can birti myndaröð frá lífi sínu, en hann lifir greinilega heilbrigðum lífsstíl og er duglegur að hlaupa, æfa og borða góðan og hollan mat.

Árshátíðarfín í sólinni!

Kolbrún Pálína Helgadóttir markaðsfulltrúi hjá Icepharma skellti sér á árshátíð í Sitges í Barcelona.

Í Madríd!

Helga Þóra Bjarnadóttir er stödd í Madríd á Spáni um þessar mundir. Vikan var viðburðarrík á Instagram hjá henni þar sem hún frumsýndi nýja kærastann líka!

Komin í páskagírinn!

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir er oft einu skrefi á undan okkur hinum. Hún er að sjálfsögðu komin í páskastemningu og búin að draga fram páskadressið. 

Alvöru peysa!

Jón Gnarr, listamður og fyrrverandi borgarstjóri, er að verða gríðarlega vinsæll á Instagram. Eins og áhrifavaldarnir fékk hann flík að gjöf í síðustu viku. Um var að ræða einstaklega fallega lopapeysu með íslenska fánanum. 

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

Sjálfa vikunnar!

Lára Clausen gerir ekki þau mistök að fara í gegnum vikuna án þess að taka speglasjálfu. 

Leikkona sem kann að pósa!

Leikkonan Stefanía Berndsen nýtur lífsins í Los Angeles þar sem hún býr og starfar um þessasr mundir. Hún kann að pósa eins og hinar stjörnurnar í Hollywood. 

mbl.is