Sollecito fannst við landamærin

Amanda Knox og Raffaele Sollecito hlutu bæði þunga dóma fyrir …
Amanda Knox og Raffaele Sollecito hlutu bæði þunga dóma fyrir morð á Meredith Kercher á FABIO MUZZI

Lögregla á Ítalíu fann Raffaele Sollecito, fyrrverandi kærasta Amöndu Knox, nálægt landamærum Austurríkis í morgun en hann var ásamt Knox fundinn sekur um morðið á Meredith Kercher árið 2007 í gær.

Vegabréf Sollecitos var ekki gert upptækt en að sögn lögmanns hans hafði hann ekki haft flótta í huga. Sollecito var dæmdur til 25 ára fangelsisvistar en Knox hlaut 28 ára og sex mánaða fangelsisdóm.

Banamein hinnar 21 árs Meredith Kercher var hnífstunga. Hún fannst látin í íbúð sem hún deildi með Knox. Sollecito var einnig dæmdur í farbann fyrir ítölskum dómstólum en dómarar töldu ástæðu til þess að ætla að hann myndi reyna að flýja land. Knox og Sollecito ætla bæði að áfrýja dómnum.

Lögregla fann manninn ásamt kærustu hans á hóteli í Venzone, um 40 kílómetrum frá landamærum, snemma í morgun.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka