Belgíska lögreglan hefur handtekið fimm manns sem grunaðir um aðild að sprengingu við rannsóknarstofnun í afbrotafræði í úthverfi Brussel í nótt. Sprengingin olli miklu tjóni en engin slys urðu á fólki.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki talið að sprengingin tengist hryðjuverkasamtökum en mögulega hafi verið ætlunin að eyða sönnunargögnum. Fimmmenningarnir voru handteknir í nágrenni staðarins og er lögregla að yfirheyra þá í tengslum við rannsóknina, segir Ine Van Wymersch, talskona saksóknaraembættisins í Brussel. Hún ræddi við blaðamenn á fundi í dag en hún segir ekki neitt útilokað varðandi hryðjuverk.
Stofnunin er til húsa í Neder-Over-Hembeek, norður af Brussel. Van Wymersch segir að stofnunin, sem safnar og rannsakar sönnunargögn, hafi ekki verið valin af handahófi af árásarmönnunum. Þar sé unnið með mikilvægar upplýsingar í málum sem eru til rannsóknar hjá lögreglu þessa stundina.