Létust úr kórónuveirunni í febrúar

Víða um heim standa almenningsgarðar auðir vegna kórónuveirunnar.
Víða um heim standa almenningsgarðar auðir vegna kórónuveirunnar. AFP

Tvær manneskjur sem létust í byrjun og um miðjan febrúar í Kaliforníu voru með kórónuveiruna þrátt fyrir að fyrsta dauðsfallið af völdum veirunnar í Bandaríkjunum hafi ekki verið tilkynnt fyrr en nokkrum vikum síðar.

Krufning hefur leitt í ljós að fólk sem lést á heimilum sínum 6. febrúar og 17. febrúar var með kórónuveiruna að sögn dánardómstjóra í Santa Clara-sýslu en hann gafi í gær út yfirlýsingu þar að lútandi eftir að hann fékk þetta staðfest af hálfu Centers for Disease Control and Prevention, CDC, stofn­un­ar sem hef­ur með sjúk­dóma­varn­ir og fyr­ir­byggj­andi aðgerðir að gera. Hið sama eigi við um manneskju sem lést í Santa Clara-sýslu 6. mars.

AFP

Í yfirlýsingu dánardómsstjórans kemur fram að fólkið hafi allt dáið á heimilum sínum á sama tíma og sýnataka var að hefjast í Bandaríkjunum og aðeins í boði í gegnum CDC.

Forsenda fyrir því að fá að koma í greiningu hjá CDC á þessum tíma var að viðkomandi hafi ferðast úr landi og þeir sem þyrftu á heilbrigðisþjónustu að halda vegna ákveðinna sjúkdóma.

Hann segist eiga von á því að fleiri sambærileg mál muni koma upp á næstunni. Það er að fólk í Santa Clara hafa látist vegna COVID-19 en hingað til hefur verið talið.

Fyrsta dauðsfallið af völdum kórónuveirunnar var tilkynnt og skráð í Washington-ríki 26. febrúar. Telja sérfræðingar á heilbrigðissviði að vegna skorts á sýnatökubúnaði séu líkur á að umfang kórónuveirufaraldursins í Bandaríkjunum sé vanmetið. Í rannsókn sem birt var í vikunni kemur fram að faraldurinn sé mun útbreiddari þar en opinberar tölur segja. 

Blóðsýni sem tekin voru úr 3.300 sjálfboðaliðum í Santa Clara-sýslu sýna að 50 sinnum fleiri hið minnsta eru með COVID-19 en staðfest smit gefa til kynna í sýslunni samkvæmt rannsókn Stanford háskóla. 

Santa Clara var meðal fyrstu svæða í Bandaríkjunum þar sem yfirvöld fyrirskipuðu fólki að halda sig heima en útgöngubann, með ákveðnum undantekningum, var sett þar 17. mars.

Yfir 800 þúsund smit hafa verið staðfest í Bandaríkjunum og yfir 45 þúsund eru látnir þar í landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert