Útgöngubann í Minneapolis

Útgöngubannið tekur gildi klukkan 20 að staðartíma í kvöld (klukkan …
Útgöngubannið tekur gildi klukkan 20 að staðartíma í kvöld (klukkan 1 eftir miðnætti að íslenskum tíma) samkvæmt tilskipun borgarstjórans Jacob Frey og gildir til klukkan sex í fyrramálið. AFP

Borgarstjórinn í Minneapolis hefur sett á algjört útgöngubann í borginni. Hörð mótmæli hafa verið í borginni undanfarnar þrjár nætur í kjöl­far dráps lög­reglu á Geor­ge Floyd, 46 ára svört­um Banda­ríkja­manni, á mánudag. Allt er á suðupunkti í borg­inni og tóku fjöl­marg­ir þátt í mót­mæl­um þar sem og víðar í Banda­ríkj­un­um.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa rætt við fjölskyldu Floyd. „Þau eru æðisleg,“ sagði hann á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag. Trump hefur verið gagnrýndur fyrir ummæli sín um mótmælendur í borginni, en hann kallaði þá óþokka og sagði að „þegar ránin byrja, þá hefst skothríðin“. 

Lög­reglumaðurinn Derek Chau­vin sem sakaður er um að hafa orðið  Floyd að bana var fyrr í dag úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald og ákærður fyr­ir morð. Á upptöku af handtökunni sést hann krjúpa á hálsi Floyd í nokkrar mínútur með þeim afleiðingum að hann lét lífið. 

Útgöngubannið tekur gildi klukkan 20 að staðartíma í kvöld (klukkan 1 eftir miðnætti að íslenskum tíma) samkvæmt tilskipun borgarstjórans Jacob Frey og gildir til klukkan sex í fyrramálið. Lögregla, sjúkralið og þjóðvarðalið Bandaríkjanna munu sinna eftirliti í borginni í nótt. 

Trump segist bera virðingu fyrir mótmælum, svo lengi sem þau fara friðsamlega fram. Þá segir hann fjölskyldu Floyd eiga rétt á að réttlætinu verði framfylgt. „Ég skil skaðann, ég skil sorgina. Fólkið hefur gengið í gegnum margt,“ sagði forsetinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert