Yfir 200 látnir á Filippseyjum

Allt í rúst í strandbænum Ubay á Filippseyjum.
Allt í rúst í strandbænum Ubay á Filippseyjum. AFP

Yfir 200 hafa látist vegna stærsta fellibylsins sem hefur gengið yfir Filippseyjar á þessu ári.

Rauði krossinn á Filippseyjum segir að „algjör eyðilegging” hafi orðið við strendur landsins eftir að fellibylurinn Rai „reif í sundur” heimili, sjúkrahús og skóla.

Þök fuku af húsum, flóð urðu í þorpum, tré rifnuðu upp með rótum og uppskera eyðilagðist, svo eitthvað sé nefnt.

Íbúar hafa í örvæntingu beðið um matar- og drykkjaraðstoð.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert