Einar Kárason ráðinn á DV

Einar Kárason.
Einar Kárason. mbl.is/Ómar Óskarsson

Einar Kárason er meðal þeirra sem hafa verið ráðnir til starfa á DV, samkvæmt frétt sem birtist á dv.is í kvöld.

Í fréttinni segir að „Einar Kárason, einhver dáðasti og virtasti rithöfundur okkar Íslendinga, er genginn til liðs við DV. Mun hann sjá um fastan dálk á einni opnu í helgarblaði DV á nýju ári og hefur frjáls efnistök.

Jafnframt er frágengið að Kristín Tómasdóttir mun verða fastur dálkahöfundur í helgarblaði DV með skrif sín „Út fyrir kassann“ sem vakið hafa mikla athygli.

Þá mun hjúkrunarfræðingurinn Ragnheiður Haralds- og Eiríksdóttir skrifa um kynlíf fyrir helgarblað DV, en hún hefur jafnframt verið ráðin blaðamaður á DV ásamt Val Grettissyni.“

Frétt dv.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka