Tjaldstæði rýmt vegna vatnavaxta

Herðubreiðarlindir.
Herðubreiðarlindir. Ljósmynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra

Lögreglan á Norðurlandi eystra ákvað að rýma tjaldstæðið í Herðubreiðarlindum klukkan hálfeitt í nótt vegna vatnavaxta í jökulánum Jökulsá á Fjöllum og Kreppu.

Sameiginlegt rennsli ánna var komið upp fyrir 600 rúmmetra á sekúndu samkvæmt mælum og tilkynningu frá Veðurstofu Íslands, að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar. Mikil hlýindi eru á hálendinu og vatnið til komið vegna bráðnunar.

Ekki er ljóst hversu mikið varnargarðurinn ofan við Herðubreiðarlindir þolir en árnar koma saman ekki langt austan við Lindirnar. Því var þessi ákvörðun tekin. 

Þjóðvegi F88 frá hringvegi og að þjóðvegi F910, Austurleið, var einnig lokað á meðan þetta ástand varir. Þetta verður skoðað nánar í dag og fylgist Veðurstofan með rennsli ánna sem og lögreglan. Fólkið sem var í Herðubreiðarlindum fór upp í Drekagil við Öskju og er þar við góðan kost, að sögn lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert