Leiknir R. hefur verið sektað um 60 þúsund krónur fyrir að nota ólöglegan leikmann í leik gegn Fjölni í Lengjubikarnum í knattspyrnu á laugardaginn var. Japaninn Ryota Nakamura er lék með Leikni í leiknum en hann er skráður erlendis.
„Í samræmi við greinar 10.1 og 11.2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Ryota Nakamura lék ólöglegur með Leikni R. gegn Fjölni í Lengjubikar karla þann 10. mars síðastliðinn. Leikmaðurinn er skráður erlendis,“ segir í frétt á heimasíðu KSÍ.
Fjölnir vann leikinn 4:0 og hefur atvikið því ekki áhrif á úrslit leiksins. Félag sem notar leikmann sem er ekki með keppnisleyfi, telst hafa tapað leiknum 3:0, nema tap hafi verið stærra.