Knattspyrnusamband Íslands hefur gert sex ára samning við íþróttavöruframleiðandann Puma og tekur hann gildi 1. júní. Landsliðin hafa leikið í búningum frá Errea frá árinu 2001.
Þá verður nýtt landsliðsmerki kynnt í lok næsta mánaðar og verður það á nýju landsliðsbúningunum sem einnig verða kynntir í júní.
Knattspyrnusamband Íslands hefur samið við íþróttavöruframleiðandann PUMA til næstu sex ára.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 26, 2020
Samningur KSÍ og PUMA tekur gildi 1. júlí og tekur við af samningi KSÍ og Errea, en landsliðin hafa leikið í Errea fatnaði frá árinu 2001. https://t.co/sJBvpUmDNn#fyririsland pic.twitter.com/pXsg8RMl4g