Hjartastuðtæki við höndina samkvæmt verklagsreglum

Jason Daði Svanþórsson.
Jason Daði Svanþórsson. Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason

Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi vegna atviks sem varð í heimaleik liðsins gegn FH á dögunum. 

Ja­son Daði Svanþórs­son­ lagðist niður í leiknum og leit atvikið ef til vill illa út fyrir áhorfendur sem skiljanlega gátu ekki gert sér í hugarlund hvað amaði að. Leikmaður var svo fluttur í burtu með sjúkrabíl en hann missti aldrei meðvitund eins og fram kemur í yfirlýsingunni. 

Yfirlýsing knattspyrnudeildar Breiðabliks:

„Vegna umræðu um atvik í leik meistaraflokks karla á Kópavogsvelli þann 20. júní síðastliðinn, vill Breiðablik koma eftirfarandi á framfæri.
Á leikjum hjá meistaraflokkum Breiðabliks er sjúkraþjálfari á bekknum en auk þess er nauðsynlegur skyndihjálparbúnaður einnig til staðar, þar með talið hjartastuðtæki.
Þegar leikmaður Breiðabliks lagðist niður í leik þann 20. júní, var gengið til verks í samræmi við reglur. Á vettvang komu til stuðnings sjúkraþjálfara Breiðabliks, sjúkraþjálfari gestaliðs auk tveggja heilbrigðisstarfsmanna úr stúkunni. Í samráði við til þess bæra aðila var það metið svo að ekki væri ástæða til að sjúkrabíll kæmi í forgangsakstri og því kom hann eftir 11 mínútur, ef þörf hefði verið hefði hann án vafa komið fyrr.
Einhverjum kann að hafa brugðið við að sjá hjartastuðtæki vera komið inn á völlinn en er það samkvæmt verklagsreglum félagsins, öryggisins vegna. Leikmaðurinn missti aldrei meðvitund.
Knattspyrnudeild Breiðabliks kappkostar að hafa alla framkvæmd leikja, öryggismál og umgjörð eins og best er á kosið og í fullu samræmi við allar reglur þar um sem settar eru af KSÍ og UEFA. Um leiki í deildakeppni á Íslandi og leiki í Evrópukeppni gilda ekki sömu reglur um umgjörð, öryggisgæslu og fleira.
Knattspyrnudeildin fer reglulega yfir skipulag í þessum málum á heimaleikjum Breiðabliks með sérfræðingum og uppfærir verklag sé þess þörf. Það er alltaf hægt að gera enn betur.
Knattspyrnudeild Breiðabliks


</iframe>

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert