Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur valið 18 manna hóp sem fer til Þýskalands og tekur þátt í lokaundirbúningi fyrir EM.
Strákarnir fara út í fyrramálið til Þýskalands og leika þar tvo vináttulandsleiki við Þjóðverja. Fyrri leikurinn er á laugardag kl.14 í Kassel og sá síðar í Hannover á sunnudag einnig kl. 14.
Þeir sem detta út eru markvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson og hornamennirnir Bjarki Már Elísson og Guðmundur Árni Ólafsson.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Aalborg
Björgvin Páll Gústavsson, Bergischer
Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson, Rhein Neckar Löwen
Arnór Atlason, St. Raphaël
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer
Aron Pálmarsson, Veszprém
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Guðjón Valur Sigurðsson, Barcelona
Guðmundur Hólmar Helgason, Valur
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstad
Róbert Gunnarsson, Paris Handball
Rúnar Kárason, Hannover/Burgdorf
Snorri Steinn Guðjónsson, Nimes
Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein Neckar Löwen
Tandri Már Konráðsson, Ricoh
Vignir Svavarsson, Midtjylland