Sauberliðið hefur framlengt samninga við ökumennina Marcus Ericsson og Felipe Nasr út næsta ár, 2016.
Báðir eru þeir á fyrsta starfsári hjá Sauber; Ericsson var ráðinn frá Caterham sem nú er horfið af vettvangi og Nasr hóf frumraun sína í formúlu-1 í ár eftir að hafa keppt í undirformúlunni GP2.
Sauberstjórinn Monisha Kaltenborn kveðst hafa mikla trú á ökumönnunum, hæfileikum þeirra og færni. Stefndi liðið í rétta átt með áframhaldandi ráðningu þeirra.