Ekki þarf að velta vöngum frekar yfir framtíðar vinnustað Sebastians Vettels því staðfest var fyrir stundu að hann myndi keppa fyrir Ferrari út árið 2020.
Vettel sagði síðast í gær að honum lægi ekkert á í samningamálum og vart yrði nokkuð að frétta af málinu fyrr en í næsta móti, í Monza á Ítalíu. Hefur hann undanfarnar vikur og mánuði freistað þess að fá aðeins framlengingu til eins árs, en Ferrari hefur haft sitt fram.
Ferrari lagði í júlí fyrir hann samning til þriggja ára sem fól í sér að hann fær jafnvirði 15 milljarða íslenskra króna samtals í kaup árin þrjú, 2018, 2019 og 2020.