Pierre-Emerick Aubameyang, framherjinn öflugi í þýska liðinu Borussia Dortmund, var ekki í leikmannahópi liðsins þegar það gerði markalaust jafntefli við Wolfsburg á heimavelli í gær.
Í þriðja sinn á tveimur síðustu leiktíðum var Aubameyang settur í agabann. Gabonmaðurinn, sem hefur skorað 13 mörk í 18 deildarleikjum með Dortmund á tímabilinu, mætti ekki á liðsfund degi fyrir leik og ákvað þjálfari liðsins að velja hann ekki í hóp sinn.
„Hann sagðist hafa gleymt fundinum en við vitum allir að það var ekki ástæðan,“ sagði Peter Stöger, þjálfari Dortmund, við fréttamenn.