Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson verður ekki í leikmannahópi Nantes í dag og að sögn ítalska knattspyrnustjórans er ennþá smá bíð í að kappinn snúi aftur á völlinn. Nantes mætir Amiens í kvöld frönsku 1. deildinni.
„Diego Carlos er kominn til baka. Koffi Djidji er aðeins þreyttur. Joris Kaymbe spilaði nokkrar mínútur í Nice og er allur að koma til. En við þurfum aðeins að bíða með Kolbein Sigþórsson og Kalifa Coulibaly,“ var haft eftir Ranieri á vef L'Equipe í gær um leikmenn Nantes sem hafa verið á meiðslalistanum.
Kolbeinn hefur hafið æfingar með Nantes á ný og æft með liðinu í nokkrar vikur en virðist ekki vera orðin klár í slaginn að mati þjálfarans. Kolbeinn sagði aftur á móti í byrjun þessa mánaðar vera tilbúinn að spila þá þegar.
„Um leið og þjálfarinn segir mér það. Ef hann segir mér að spila um helgina þá er ég tilbúinn. Ég vona allavega að ég fái að spila í þessum mánuði. Ég er kannski ekki klár í 90 mínútur en mér finnst ég geta hjálpað liðinu,“ sagði Kolbeinn.
Kolbeinn hefur enn fremur látið hafa það eftir sér að hann vonist til þess að komast í íslenska landsliðið sem verður á meðal þátttökuþjóða á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.