Hafa hafnað tveimur tilboðum í íslenska framherjann

Hólmbert Aron Friðjónsson er eftirsóttur í Svíþjóð.
Hólmbert Aron Friðjónsson er eftirsóttur í Svíþjóð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forráðamenn sænska knattspyrnufélagsins Hammarby hafa mikinn áhuga á íslenska framherjanum Hólmberti Aroni Friðjónssyni.

Þetta herma heimildir mbl.is og þá hefur sænski miðillinn Sportbladet einnig fjallað um málið.

Hólmbert, sem er 29 ára gamall, er samningsbundinn Holstein Kiel í þýsku B-deildinni en hann lék með Lilleström í Noregi á láni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 13 mörk í 36 leikjum.

Hólmbert hefur einnig leikið með Bröndby, Aalesund og Brescia á atvinnumannaferli sínum en hann eru uppalinn hjá HK í Kópavogi.

Samkvæmt heimildum mbl.is hefur Hammarby lagt fram tvö tilboð í framherjann, sem báðum hefur verið hafnað, en alls á hann að baki sex A-landsleiki þar sem hann hefur skorað tvö mörk.

Hammarby hafnaði í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð með 56 stig, átta stigum minna en meistaralið Häcken.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert