Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson léku báðir á 73 höggum eða á einu höggi yfir pari á fyrsta hring á Prague Golf Challenge-mótinu á Áskorendamótaröð Evrópu í dag.
Birgir Leifur fékk tvo fugla, einn skolla og einn tvöfaldan skolla á holunum átján, eins og Axel. Þeir þurfa báðir að leika betur á morgun til að eiga möguleika á að fara í gegnum niðurskurðinn.
Adri Arnaus frá Spáni er efstur á níu höggum undir pari og Joel Girrbach frá Sviss kemur þar á eftir á sjö höggum undir pari.