Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, hefur forystuna eftir tvo hringi á Golfbúðarmótinu í golfi sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Um annað mótið á mótaröð Golfsambands Íslands á árinu 2020 er að ræða.
Ólafía Þórunn lék á pari í dag og er samtals á tveimur höggum yfir pari. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbinum Keili, er í 2. sæti á samtals þremur höggum yfir pari en hún lék einnig á pari í dag. Það stefnir því í æsispennandi einvígi þeirra á morgun.
Hringurinn hjá þeim Ólafíu og Guðrúnu var nokkuð stöðugur en báðar fengu þær tvo fugla, tvo skolla og 14 pör.